Ölgerðin verður að athuga sinn gang

Best að vanda sig þannig að maður fái ekki málshöfðun yfir sig en:

"Í tilkynningu frá Ölgerðinni, sem flytur inn iðnaðarsaltið, er spurt hvort Íslendingar séu sáttir við að víðlesinn fréttamiðill segi þá hafa borðað götusalt í áraraðir."

Ég sem Íslendingur hef ekki neinar sérstakar áhyggjur af því hvernig því er lýst í einhverjum erlendum fjölmiðli hvað ég hef verið að borða en það að ég hafi í raun og veru, verið að borða salt sem er ætlað til iðnaðarnota í heil þrettán ár er eitthvað sem mér finnst gjörsamlega óásættanlegt.  Þeir sem hafa átt þátt í því eiga að horfa í eiginn barm og biðja þjóðina afsökunar. Innflytjandinn, matvælaframleiðandinn og eftirlitsaðilinn. Ég sé ekki annað en að þeir hafi allir brugðist hrapalega.

Og það að þetta salt sé í raun ekki mjög ólíkt venjulegu salti ætlað til neyslu er ekki nein einasta afsökun.


mbl.is „Ekki á mína ábyrgð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Sammála. Það er Ölgerðin sem þarf að hugsa sinn gang, frekar en að velta eigin mistökum (viljandi eða ekki) yfir á aðra.

Villi Asgeirsson, 19.1.2012 kl. 14:44

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já ég er algjörlega sammála ykkir.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.1.2012 kl. 15:31

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

ykkur á að vera, sorry.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.1.2012 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband